Vorboðinn ljúfi er óvenju snemma á ferðinni þetta árið. Ástæðan er söngferðalag Karlakórsins Ernis til Skotlands í byrjun apríl. Kórinn heldur því tónleika í Félagsheimilinu á Bolungarvík fimmtudaginn 28. mars, kl 20:00. Á efnisskrá eru bæði gamlar perlur og nýjir slagarar.
Stjórnandi: Beata Joó
Meðleikari: Pétur Ernir Svavarsson
Einsöngvarar: Ómar Sigurðsson og Pétur Ernir Svavarsson
Aðgangseyrir einungis 2.500 kr. (posi á staðnum)